
Hópferðir, flugvallakstur og rútuleiga
Ertu að leita að einfaldri og skemmtilegri leið til að skipuleggja ferðir fyrir hópa?
Við sérhæfum okkur í hópferðum fyrir öll tilefni – stór og smá. Hvort sem þú ert að skipuleggja ferð fyrir vini, samstarfsfólk eða nemendur, sjáum við um allt frá upphafi til enda.
Við bjóðum einnig fjölbreytt úrval af ferðum, þar á meðal vinsælar dagsferðir um landið þar sem náttúra, menning og skemmtun fara saman. Fyrir þá sem vilja eitthvað öðruvísi bjóðum við einnig upp á spennandi óvissuferðir þar sem ævintýrið bíður handan við hornið.
Fyrir öll tilefni
Við vitum að hver hópur er einstakur og því sníðum við ferðina að þínum þörfum. Meðal vinsælla ferða eru:
- Skemmtileg gæsapartý og steggjapartý
- Skipulagðar útskriftarferðir fyrir nemendur
- Sérsniðnar fyrirtækjaferðir og árshátíðaferðir
- Uppbyggjandi hvataferðir fyrir starfsfólk
Ferðir fyrir skóla og íþróttahópa
Við höfum mikla reynslu af skipulagningu fyrir skólahópa og bjóðum upp á öruggar og fræðandi ferðir sem henta öllum aldri. Einnig skipuleggjum við íþróttaferðir þar sem áhersla er lögð á þægindi, skipulag og góðan anda innan hópsins.
Rútuleiga fyrir hópa
Við bjóðum upp á fyrsta flokks rútuleigu þar sem öryggi og þægindi eru í fyrirrúmi. Hvort sem um er að ræða stutta ferð eða lengra ferðalag tryggjum við að ferðin gangi snurðulaust fyrir sig.
Við bjóðum upp á áreiðanlegan flugvallaakstur, svo hópurinn komist á réttum tíma og án stresss til og frá flugvellinum.
Hafðu samband í dag
Láttu okkur hjálpa þér að búa til ferðir sem allir muna eftir. Með reynslu, sveigjanleika og metnað í þjónustu tryggjum við að þín ferð verði einstök.
Hafðu sambant við privatetours@bustravel.is









